|
|

|
Úr safni Tryggva Þórhallssonar |
Í nýju húsnæði Snorrastofu er bókasafn, góð aðstaða fyrir fræðastörf og gestaíbúð fyrir vísindamenn og rithöfunda. Bókasafnið verður eflt með tilliti til þess að tiltækar verði sem flestar þær bækur sem að gagni koma við rannsóknir í miðaldafræðum. Safninu hafa borist veglegar bókagjafir, bæði frá innlendum aðilum og erlendis frá og er fjöldi bóka um 30.000 eintök.

Úr bókasafni Snorrastofu.
Söfn, sem gefin hafa verið Snorrastofu
- Bókasafn dr. Jakobs Benediktssonar.
- Bókasafn Tryggva Þórhallssonar, fyrrverandi forsætisráðherra.
- Bókasafn Guðmundar G. Hagalíns, rithöfundar.
- Bókasafn gamla Héraðsskólans í Reykholti.
- Hluti úr safni Þórarins Sveinssonar, læknis.
- Hluti úr safni Guðjóns Ásgrímssonar.
- Bókasafn Þóris Steinþórssonar, fyrrverandi skólastjóra Héraðsskólans í Reykholti.
-
Hluti úr safni Dr. Magnúsar Stefánssonar, sagnfræðings.
-
Hluti úr safni Kristjáns Albertsssonar.
-
Bækur og skjöl úr fórum Friðriks Ásmundssonar Brekkan.
Auk þessara stóru gjafa hefur Snorrastofu verið gefinn fjöldi bóka.
|